Vafrakökur

Síðast uppfært 21. september 2026 · VAKTO ehf., kt. 490806-0400 · hallo@vakto.is

Stutta útgáfan: vakto.is notar engar greiningar- eða auglýsingavafrakökur og enga rakningu þriðju aðila. Aðeins það sem þarf til að þú getir skráð þig inn og til að muna stillingarnar þínar.

1. Nauðsynlegar vafrakökur

NafnTilgangurLíftími
sb-*-auth-tokenInnskráning (Supabase Auth). Heldur þér innskráðum og endurnýjar lotuna.Þar til þú skráir þig út, að hámarki nokkrar vikur
vakto-impersonating, vakto-impersonating-uiAðeins þegar VAKTO-stuðningur skráir sig inn sem fyrirtæki til að aðstoða; sýnir borða efst og leið til baka.Lota

Þessar kökur eru forsenda þess að þjónustan virki og krefjast ekki samþykkis samkvæmt lögum um fjarskipti.

2. Geymsla í vafranum (localStorage)

Til að muna stillingar geymum við nokkur gildi í vafranum þínum. Þau fara aldrei til þriðju aðila og innihalda ekki persónuupplýsingar.

LykillTilgangur
vakto-langValið tungumál (íslenska/enska)
vakto-themeLjóst eða dökkt þema
vakto-rail, vakto-dash-*, vakto:period:*Hvernig þú síðast stilltir hliðarstiku, mælaborð og tímabil
vakto-onb-hiddenAð þú hafir lokað byrjunarleiðbeiningum
vakto-kiosk-mode, vakto-kiosk-langStillingar stimpilklukku á spjaldtölvu
vakto-home-chatAuðkenni samtals í spjallinu á heimasíðunni svo þú getir haldið því áfram

3. Þriðju aðilar

Við notum hvorki Google Analytics, Meta Pixel né sambærilega þjónustu á vakto.is. Innbyggð myndbönd eða ytri efnishlutar eru ekki notaðir. Sé starfsmannaskírteini bætt í Apple Wallet eða Google Wallet gilda skilmálar Apple/Google um það í símanum.

4. Hvernig þú stjórnar þessu

Þú getur eytt vafrakökum og geymslu í stillingum vafrans. Sé nauðsynlegum kökum eytt þarftu að skrá þig inn aftur. Ef við bætum við einhverju sem krefst samþykkis (t.d. greiningum) verður beðið um það sérstaklega áður en það er virkjað og þessi síða uppfærð.

5. Samband

Spurningar um vafrakökur og persónuvernd: hallo@vakto.is. Sjá einnig persónuverndarstefnu.