Skýrslur sem skipta máli.
Laun % af veltu per mánuð, kostnaður per deild, yfirvinna, veikindi og mæting. Sæktu í Excel eða PDF, eða biddu VAKTO AI um skýrsluna.

Vaktaplan, stimpilklukka, launakeyrsla og ráðningarsamningar. Og launakostnaður sem hlutfall af veltu, í rauntíma.
Dragðu vaktir til, afritaðu síðustu viku eða biddu gervigreindina um plan sem passar veltuspánni. Launakostnaðurinn reiknast á meðan.

Eða á spjaldtölvu við innganginn. Staðsetning staðfest ef þú vilt.

Hver mætti seint, hver fór fyrr og hvað það kostaði.

Álag, yfirvinna og uppbót reiknuð. Beint í Payday eða DK.

Starfsfólk ýtir á nafnið sitt og slær inn sinn kóða, eða skannar skírteinið úr símanum. Allir sjá hver er á vakt og stimplunin fer beint í tímaskráninguna.

Rásir per deild og stað. Enginn Messenger-hópur með fyrrverandi starfsfólki.

VAKTO AI
Segðu hvað þarf að gera, eins og við vaktstjóra. VAKTO AI les þín gögn, svarar með þínum tölum og undirbýr breytinguna.

Hey VAKTO, gerðu vaktaplan fyrir næstu viku í eldhúsinu. Allir fá að minnsta kosti tvo frídaga og alltaf þrír á vakt.
Setur upp vikuna fyrir eldhúsið: þrír á vakt alla daga og allir með minnst tvo frídaga. Aðrar deildir haldast óbreyttar.
Hey VAKTO, opnaðu vaktir alla daga næstu viku milli 17 og 23.
Stofnar sjö lausar vaktir. Starfsfólk fær tilkynningu og sækir um í appinu.
Hey VAKTO, samþykktu fríbeiðnina hennar Önnu.
Finnur beiðnina, sýnir dagana og samþykkir. Anna fær tilkynningu.
Hey VAKTO, hver er ekki mættur í dag?
Sýnir hverjir á plani dagsins hafa ekki stimplað sig inn, og hve seint þeir eru.
Hey VAKTO, Jón gleymdi að stimpla sig út. Settu útstimplun kl. 23:00.
Setur útstimplun hjá Jóni kl. 23:00 og tímaskráningin lagast.
Hey VAKTO, sendu ráðningarsamninginn aftur á Pétur Karlsson.
Sendir undirritunarbeiðnina aftur á netfangið hans Péturs.
Hey VAKTO, af hverju var laun % hærra í september en í ágúst?
Ber mánuðina saman: velta, tímar, yfirvinna og álag, og nefnir helstu ástæðurnar.
Hey VAKTO, hver vann mesta yfirvinnu í mánuðinum?
Raðar starfsfólki eftir yfirvinnutímum og hvað þeir kostuðu.
Hey VAKTO, láttu mig vita ef einhver fer yfir 180 tíma í mánuðinum.
Setur upp vaktara: þú færð póst við 90 % og aftur ef einhver fer yfir, líka miðað við planið.
Hey VAKTO, sendu mér yfirvinnuskýrslu alla mánudaga.
Skýrsla síðustu viku kemur í póstinn kl. 8 á mánudögum, með Excel-skjali.
Ekkert breytist án þín. VAKTO AI spyr alltaf áður en hann breytir nokkru. Þú sérð tillöguna og ýtir á Staðfesta.
Fyrir stjórnendur og vaktstjóra. 25 spurningar á mánuði innifaldar.
Kerfið fylgir stillingu tækisins. Dragðu til að bera saman.



Vaktirnar, stimplun, áætluð laun, orlofsstaða, frí og vaktaskipti. Og spjall og fréttaveita fyrir allan hópinn.

VAKTO fyllir út ráðningarsamning úr gögnum starfsmannsins, eftir formi Vinnumálastofnunar. Báðir skrifa undir í símanum og fá undirritað eintak í pósti.



Í Apple og Google Wallet, með mynd, stöðu og QR-kóða. Kóðinn stimplar inn á spjaldtölvunni við innganginn, án þess að slá inn PIN.
5 virkir starfsmenn innifaldir.
1.490 kr á hvern virkan starfsmann umfram.
Án VSK. Þú borgar aðeins fyrir þá sem unnu í mánuðinum. Undirskrift með rafrænum skilríkjum 490 kr. VAKTO AI: 25 spurningar á mánuði innifaldar, allt að 500 með viðbót á 1.990 kr/mán. 15% afsláttur ef greitt er árlega. 14 daga frí prufa, engin binding.
Prófa fríttVið komum til ykkar og kynnum VAKTO fyrir stjórnendum og starfsfólki. Frítt og án skuldbindingar.